Hóhóhó!

Jæja leikfimin dugði ekki lengi eða vikan sem að ég fékk gefins er búin og ég ekki mætt síðan heldur búin að éta eins og svín frekar. ætla mér nú að kenna þessu mánaðarlega um, verður maður ekki að kenna einhverju um. En ég ætla að taka mig á aftur eftir áramót og kaupa mér kort í Worldclas. Þannig að það verður mitt áramóta heit að halda áfram á sömubraut og ég hef verið á.

Ég var að sdækja um íbúð hjá búseta, í Berjarimanum en var númer 4 í röðiniFrown, en það er svo sem ágæt því að það er mun betri tala heldur en síðast þegar ég sótti um, þannig að ég þjakast kanski eitthvað nær þessu. Var samt eiginlega að vona að ég myndi fá hana.

Núna fara Jólasveinarnir að koma til bygða og ég veit ekki hvor er spentari ég eða Ingi, hann hefur nátturulega ekkert vit á þessu en ég ákvað að leyfa þeim að koma í heimsókn þetta árið því að mér finnst það svo gaman og spennandi. Svo á aðfangadag ætla tveir af brærunum að kíkja í heimsókn til okkar og þá ætla Dagný Lóa og Trausti Leó að vera hérna hjá okkur líka.

Ég er að verða búin  að versla allar jólagjafir á bara mogp eftir veit eiginlega ekkert hvað ég á að gefa þeim. Ég er búin að fá jólakortin og á bara eftir að senda þau sem ég ætla að senda annars afhendi ég bara flest öll. Þannig að það er allt að verða tilbúið hérn hjá okkur.

Við fóru á Jólahlaðborð á sunnudaginn og það var svo góður matur og á föstudagin var jólagleði í leikskólanum og mín var á peruni kom ekki einusinn heim til mín um nóttina, og nei mín er ekki búin að finna sér kall heldur kíktum við aðeins til Brynju og mín krassaði þar í sófanum, en það var gegjað gaman.

Jæja ætla að lát þetta duga í bili kossar og knús til ykkar allra

kv Ágústa


Mín bara byrjuð í leikfimi

Hæhæ

Hvað haldið þið að mín hafi gert á laugardaginn? Já mín frétti að það væri frítt að fara í leikfimi hjá Báru og ákveð það að skella mér bara með múttu, og þá var mér boðið viku kort og að sjálfsögðu þáði ég það. Svo á mánudaginn vaknaði ég kl 5:30 og fór í leikfimi ógó dugleg finnst ykkur ekki. Svo er bara vakna snemma á morgunn og skella sér á hlaupabrettiðSmile

Annars bara gengur allt sinn vana gang hérn ég er í skólanum og gengur það mjög vel, alveg brjálað að gera núna. Finnst ég hafa allt of lítinn tíma fyrir Inga, en það breytist kanski eftir næstu viku því að þá er komið jóla frí í skólanum. Svo er ég bara að klára að tæma íbúðina, já ég fékk að fara inn í hana og klára að taka mitt þegar Raggi vara fluttu og er ég mjög þakklát fyrir það. Það er einhvern vegin miklu þægilegra að ræða við hann núna held að mesta reyðin sé runninn af honum. Enda verður að vera gott samband á milli þar sem að við eigum barn saman og ég held að hann hafi verið búinn að finna það að það hafi verið eitthvað stirt á milli þegar Raggi kom með hann heim. En núna er allt betra og Ingi hættur að segja nei við að fara til pabba sinns. Sem er bara æðislegt því að þá veit ég að honum líður vel þar.

Jæja ætla að hætta þessu bulli núna

kossar og knús Ágústa

 


Hætt að leggjast í volæði

Hæhæ jæja nú ætla ég að skrifa um einhvað allt annað en þennan kall og þvá sem honum fylgir, reyna bara að losa mig algjörlega við hannLoL

En vitið þið hvað það eru bara 37 dagar til jóla, vá hvað það er stutt í þau og vitið þið annað mín er sko búin að versla allar jólagjfirnar nema tvær. En það eru ekki léttar jólagjafir sem að eftir eru, það er hann Ingi minn og svo mamma og pabbi og ef þið eruð með einhverja tillögu um hvað það eigi að gefa þeim í jólagjöf þá endilega segið mér hvað það er. svo er ég búin að kaupa jólaskó og jólaskyrtu á Inga en á eftir að kaupa á hann buxur og er svona nokkuð búin að ákveða hvaða buxur verða fyrir valinu og þá vantar mig bara rauða peysu á hann.

En með mig veit ég ekkert hvað ég á að geraBlush  ég á nátturulega rosalega fín föt en er orðin svolítið leið á að vera alltaf sömu fötunum og langað í eitthvað nýtt. Svo eru allar buxurna mína orðanar of stórar á mig því að ég er búin að léttast um 14 kg. en ég er ekki hætt að léttast ætla mér að léttast meira þanng að ég tími valla að kaupa mér föt alveg strax þar sem að ég er ekki orðin sátt vð viktina en hvað finnst ykkur ætti ég að skella mér á einhvar föt fyrir jólin?

En allavega er mér farið að hlakka til að skreyta fyrir jólin og hlusta á jólalög  þegar maður getur fariða að byrja á því þá eru jólin á næsta leyti ekki satt.

Lærið að elska sjálfan ykkur þá getið þið farið að elska einhvern annan.

kv ÁgústaKissing


Flutt

Jæja þá er ég alveg flutt út búin að taka dótið mitt en því miður þá þurfti ég að skija alveg fullt af dóti eftir. Ég fékk nefnilega bara eina kvöldstund til að taka saman dótið mitt og Inga og hypja mig með það, og ætli restin af dótinu mínu verði ekki hentFrown. En núna er Raggi orðinn þannig að hann getur ekki einu sinni talað vð mig og ég veit ekki alveg hvað honum ætlast fyrir með þessu en þar sem að ég veit að hann les bloggið mitt þá gæti han kanski bara svarað því.

En við höfum það bara gott hérna ég er búin að vera í skólanum alla helgina á Skyndihjálpa námskeiði og er það búið að vera fínt nema að í dag finns mér vera föstudagur en það er næstum heil vika í hann GetLost.

Jæja ég ætla bara að hafa þetta stutt núna en þangað til næst

kossar og knús

P.s. er bún að opna síðuna hans Inga 


Greði svolítið um helgina sem að ég hef ekki gert lengi.

Hvað haldið þið að ég hafi gert um helgina. Mín skrap á smá djam, ef djam skildi kalla, og ekki nóg með það heldur á föstudaginn fór ég til Jóhönnu þar var sma vinnu partý en þar var fáment en góðment. Svo á laugardeginum þá vorum við Solla að spjalla á msn-inu og ákváðum við að skella okkur aðeins í bæinn þannig að Fanney kom að sækja mig og ég fór til Sollu og drak afgangin af Brisernum frá kvöldinu áður og fórum við Solla svo nyður í bæ, það var mjög fínt en þar sem að ég hafði ekki farið í bæinn alveg heil langi þá var Solla bara að sína mér staðina og það var rosa gaman.

Viðar Ingi var hjá pabba sínum á laugardaginn og á meðan hann var þar þá nýtti ég tíman og fór í Ikea og keypti handa honum nýtt rúm og hann var svo ánægður með það þegar hann kom heim og afi hans var búin að setja það saman. Gurrý og Gunni komu í heimsókan um kvoldið því að pabbi átti afmæli, og hann tók Gurrý og sæyndi henni rúmi alveg hátt og látt.

Núna er orðið svo mikið að gera hjá mér að mér finnst ég varla hafa tíma tiæ að vera með litla peigjanum, það er skóli tvisvar í viku og þá sé ég hann ekkert þann daginn eftir að ég er búin að fara með´hann í leikskólan, nema ég sé heppin og sjái hann eitthvað í lekskólanum, og svo er hann yfirleitt sofnaður þegar ég kem heim. Svo er það allt hitt sem er í gangi, sem er annsi mikið þessa dagana. En hann er rosalega duglegur og á sér tvo átrúnaða goð þessa dagana og það er afi og Gummi, sem er að vinna á deildinni hans.

Næst verkefnð hjá mér er að fara og taka allt dótið úr íbúðinni ég er svona ekki að nenna því en verð víst að klára það verkefni svo að þetta sé búið, þá þarf ég ekki aðhlusta á meira röfl útaf þvíWink


Sumir eru ekki í lagi

Hvað er að fólki? Ef að ég skrifa eitthvað inn á barnaland þá er það komið til Ragga stuttu seinna. Má ég ekki tjá mig án þess að hann þurfi að fá að vita það og segja skoðun mína á fjölskyldu sem að ég er skilin við. Hvað er að, ég veit svo sem alveg hver það er sem sagði honum það en eins og ég sagði við hann þá ætla ég ekkert að hætta að segja skoðun mína heldur bara að breyta nafninu mínu.

En annars gengur allt vel hérna hjá okkur Ingi blómstrar bara, hann fær alltaf að hitta pabba sinn á mánudögum og miðvikudögum á meðan ég er í skólanum og svo fékk hann að ver hjá honm á laugardaginn, eftir að við vorum búin að fara í Húsdýragarðinn. Já við fórum með Dagnýunum tvem í Húsdýragarðin, það var frítt inn og frítt heit kakó með rjóma rosa gott. Eftir Húsdýragarðinn þá fórum vi í mat til Margrétar og þangað kom Raggi að sækja Inga og þeir fóru eitthvað saman. En ég var hjáMargréti allan dagin en var hálf veik allan tíman.

Ásunnudeginum vaknaði ég svo hress og fór með Margréti og co. í sund það var rosa fjör.

Við fórum svo í brúðkaupsveislu hjá Svenna frænda og var gaman að hitta allt þetta fólk sem maður sér eiginlega aldrey. Síðan fórum við í Ikea að athuga með rúm handa Inga því að það er búið að selja svefn sófan  sem að við sváfum í, og svo fórum við heim til Margrétar með Pizzu.

Jæja ætla að láta þetta nægja í bili en þangað til næst kossar og knús

Ágústa


Lífið mitt

 það yndislegast sem að ég hef eignast í lífinu mínu er Viðar Ingi og hann er sífellt að koma manni á óvart. Núna koma ný og ný orð hjá honum á hverjum degi og hann bara talar og talar. Það nýjasta hjá honum er að tala um hann "dumma" sinn en það er hann Gummi sem er starfsmaður á deildini hans og er greini lega í uppá haldi hjá mínum manni.

Ég er mjög ánægð með vinnuna mína og hugas að ég gæti bara ekki verið að vinna á betri stað. Þar eru allir svo samrýndir og allir stiðja við bakið á öllum og flest allir bara góðir vinir.

Fjölskyldulífið: já það er bara nokkuð gott núna ég bý hjá yndislegu foreldrum mínum og fíla það vel þau eru alveg að bjarga lífi mínu núna og við íng erum alveg að njóta okkur í botn hérna. Ingi spurði aðeins um pabba sinn í dag og var ég ekki alveg viss hverju ég ætti að svara honum því að ég er ekki alveg komin með það hverni er best að útskýra þetta fyrir honum og hversu vel hann skylur, en hann fer til pabba sinns á morgunn á meðan ég er í skólanum. En ef þið hafið einhver ráð fyrir mig þá endi lega látið mig vita.En annars fór ég á mjög góðan fyrirlestur um helgina um skilnaðar börn.

Þannig að út frá þessu er líf mitt bara nokkuð gott eðahvað finnst ykkur?

 


Lífið gengur sinn vana gang

Jæja hvað á ég að segja ykkur eins og þjóðfélagið er í dag, en ákurat núna er ég svo fegin að vera ekki með fullt af lánum og búin að koma mér út úr leigumarkaðinum eins og er, annars myndir ég ekki vita hvernig næstu mánaðarmót myndu enda og hvað þá jólin. En eitt er víst að jólagjafirnar verða litlar þessi jólin.

Ég er ótrúlega fegin í dag að eiga foreldra sem standa við bakið á mér og eru tilbúin til að hjálpa þegar þörf krefur. Ég veit ekki hvar ég væri án þeirra, trúlega bara á götunni, ég er þeim endalaust þakklát. Viðar Ingi fór til pabba sinns í gær á meðan ég var í skólanum og skilst mér að það hafi gengið vel. Það ver samt pínu skrítið þegar að hann kom aftur hingað, að það er bara eins og hann sé búin að átta sig á því að við búum hér  en pabbi hans annarstaða. En hann  hafði mikið um að tala þegar hann kom aftur og ætlar að fara aftur til hans á laugardaginn, ég er að eins að ýta Ragga útí það að vera með hann og bið hann um að passa áður en ég bið mömmu eða pabba, enda á hann barnið líka og þarf að taka ábyrgð ekki satt. Það er ekki bara hægt að eignast endalaust af börnum og láta þau svo afskiptalaus, eða hvað finnst ykkur?Errm

Heilsan er öll að koma til og ég er byrjuð  að vinna aftur en væri samt alveg til í að hætt þessum hóst og kvefi, vill bara vera við góða heilsu hef aldrey verið eins mikið frá vinnu eins og þetta ári,löngu búin með veikindagana og hef aldrey komist nálægt því að klára þá. En nú fer að koma nýtt ár og vonum að það komi með góða heilsu með sérSmile

Jæja ætla  að láta þetta gott heita knúas og kossar Ágústa 


Byrja upp á nýtt

Jæja þá ákvað ég að byrja að blogga að nýju og úr því að ég er að byrja upp á nýtt þá ákvað ég að búa mér bara til nýtt blogg.

Það er svo sem allt ágætt að frátta af okkur hérn megin, en eins og kanski flestir vit þá erum við Raggi hætt samn og við Viðar Ingi erum flutt heim til mömmu og pabba og ætlum við að nýta ann tima sem við erum hér að byggja  okkur upp svo að við getum byrjað uppá nýtt. Ég er mjög ánægð með að hafa tekið þá ákvörðun um að slít sambandinu. Viðar Ingi virðist höndla þetta alveg ágætlega en skilst samt að það hafi orðið einhverjar breytingar á honum í leikskólanum en eingar alvalegar. Hann hefur ekkkert hitt pabba sinn síðan við fluttum út en Raggi ætlar að vera með hann á miðvikudögum á meðan ég er í skólanum og vonum við bara að það gangi eftir. 

Annars erum vi Viðar Ingi búin að vera bara hérna heima síðan á fimmtudaginn þar sem að ég fékk lungabolgu og þar sem að ég veit að ástandið er frekar slæmt í leikskólanum þá ákveð ég bara að leifa honum að vera hérna heima hjá mér, en nú erum við bæði orðin mjög þreytt á að vera svona heima og hann er farinn að þrá að komast í leikskólan þetta litla skynn enda kemst ekkert út greyið. En ég býst við að við komums aftur í rútínuna á morgu, vonandi.

En ég ætla að lát þetta gott heita núna bæjó spæjó. 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband